Tóney - Síðumúla 8, 108 Reykjavík - S: 551 3888 - www.toney.is - toney@toney.is

pílates




Vorönn 2010 hefst í janúar



Á döfinni
2010-02-21Tóney í Gerðubergi
2009-08-15Tôney í leikskólum
2009-08-15Tôney í grunnskólum
2007-08-23Upprisa Tóneyjar



Námskeið uppsiglingu
Gítar - Klassískur
Kennari: Pétur Jónasson -
Söngnámskeið
Kennari: Kolbeinn Jón Ketilsson -
Harmoníka
Kennari: Tatu Kantomaa -
Pro Tools - Reason hljóðvinnsluforrit
Kennari: Eyþór Gunnarsson - Atli Sævar Guðmundsson
Sibelius nótnaskriftarforrit
Kennari: Guðni Franzson - Snorri S. Birgisson

Pilates námskeið
Hópnámskeið - 2009 / 2010
Kennari: Lára Stefánsdóttir - Ástrós Gunnarsdóttir
Einkatímar - 2009 / 2010
Kennari: Lára Stefánsdóttir - Ástrós Gunnarsdóttir



Farkennsla



Pílates

Pilates er sérlega góð líkamsrækt sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar. Hún fer fram ýmist hópum (8 - 12 manna) eða í einkatímum.

Að æfa Pilates er skynsamleg fjárfesting fyrir framtíð líkama þíns, huga og sálar. Með Pilates viðheldur þú sveigjanleika og mýkt líkamans.

Pilates lofar árangri!


Hvað er Pilates æfingakerfi?
Það má segja að Pilates kerfið sé skynsamlegt æfingakerfi. Líkamsæfingarnar byggjast á afar öguðum hreyfingum þar sem gæði og nákvæmi eru höfð í fyrirrúmi. Hver æfing er ekki endurtekin mjög oft heldur lögð áhersla á hún sé gerð rétt og í réttu samhengi. Átakið er innan frá og út og krefst mikillar einbeitingar.

Jósef Pilates (1880-1967) var lengi að þróa æfingarkerfi fyrir allan líkamann og lagði áherslu á jafnvægið á milli styrks og sveigjanleika. Æfingarnar eru unnar frá hinu svokallaða orkuhúsi (Powerhouse) sem er magi, kviðvöðvar, mjóbak og rassvöðvar. Meðvitund um vel þjálfað orkuhús leyfir öðrum hlutum líkamans að hreyfast frjálst og eðlilega.

Fyrir utan að Pilates hannaði röð af ákveðnum hreyfingum eða æfingum sem gerðar eru á dýnu þá bjó hann til sérstakt æfingakerfi fyrir sértilbúin tæki sem hafa hæfilega mótstöðu fyrir alla vöðvavinnu. Aðal tækið sem notað er í Pilates einkatímum, kallast “Reformer” eða endurmótari. Þetta er pallur sem lítur út eins og rúm með sleða sem rennur fram og aftur í braut. Til að efla enn frekar sveigjanleika líkamans þá eru þeir líkamshlutar sem þurfa á því að halda styrktir á tækjum sem kallast Cadillac, Barrels, Wunda Chair og High Chair. Æfingar sem gerðar eru liggjandi á dýnu og byggja einnig á vinnu orkuhússins, nota mótstöðu sem líkaminn býr til sjálfur. Þessar æfingar er boðið uppá í hóptímum fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir.

Dýnuæfingar Pilates teygja, styrkja og lengja vöðva líkamans. Þessar æfingar eru grunnur Pilates kerfisns. Þú uppgötvar orkuhúsið þitt og hvaða gildi það hefur á alhliða heilbrigði. Sterkt orkuhús er grundvöllur góðrar heilsu. Þú þroskar með þér jákvætt hugarfar á meðan þú styrkir og teygir vöðva. Pilates leiðir þig inn á veg heilbrigðis og krafts.

Pilates kerfið hefur sýnt og sannað, í meira en 80 ár, að það er öruggt og árangursríkt æfingakerfi fyrir líkamann og þá sér í lagi þegar það er kennt og iðkað á réttan hátt. Á síðastliðnum árum hefur nafnið Pilates fest sig í sessi og verið frjálst til notkunar eftir að dómstólar í Bandaríkjunum kváðu svo úr um, í byrjun 21. aldar. Milljórnir manna og líkamsræktarstofnanna hafa gert út á Pilates nafnið og eru afleiðingarnar oft villandi upplýsingar um hvað Pilates í raun og veru er, hvernig það vinnur og eftir hverju er að sækjast hjá Pilates þjálfara.

Pilates er etv. bara eitthvert merkingarlaust orð í hugum margra, en með þjálfun þessa æfingakerfis öðlast þú fljótt góða stjórn á líkamanum og öll meðvitund um líkamsbeitingu eykst. Með jöfnum endurtekningum á æfingum kemst smátt og smátt eðlilegur taktur og samhæfing í hreyfingar sem jafnframt tengjast andlegum og ómeðvituðum athöfnum þínum. Pilates kerfið er hannað til að gefa þér aukinn sveigjanleika, náttúrlegan þokka og eiginleika sem munu með tímanum koma fram í því hvernig þú berð þig í starfi og leik. Þú munt þróa djúpan vöðva styrk sem endist vel til mikillar vinnu, á göngu, hlaupum eða á löngum ferðalögum, kemur í veg fyrir ótímabæra líkams þreytu og léttir lund.

Hver hefur gagn af Pilates kerfinu?
Pilates er fjölbreytt og hentar jafnt, ungum sem öldnum, íþróttafólki, skrifstofufólki, dönsurum, tónlistarfólki - í raun hverjum sem er. Pilates er fyrir hvern þann sem vill efla styrk sinn og teygjanleika án þess að auka vöðvamassa. Ef æfingarnar eru gerðar reglulega þá fyrirbyggir Pilates vöðvameiðsli og ör á vefjum. Þegar sjúkraþjálfarar og kírópraktorar uppgötvuðu kerfið, kom í ljós að það nýttist sérstaklega vel og gaf góðan árangur í endurhæfingu sjúklinga.

Aukin krafa um heilsufarsmeðvitund fólks og svo í kjölfarið leitin að öruggu og árangursríku æfingakerfi, hefur orðið til þess að fólk um allan heim hefur gert Pilates að sínu aðal æfingakerfi.

Hver var Jósef Pilates?
Jósef H. Pilates fæddist í þýskalandi árið 1880. Hann var mikið veikur sem barn, þjáðist af astma, beinkröm og gigt en það er meginástæðan fyrir að hann helgaði líf sitt líkamsrækt. Pilates stundaði ungur líkamsþjálfun og íþróttir en 14 ára gamall þótti hann nógu góður til að sitja fyrir á “anatomy” plakati. Árið 1912 flutti hann til Englands og vann fyrir sér sem boxari, sýndi í sirkus og var auk þess sjálfsvarnarþjálfari. Í fyrri heimsstyrjöldinni varð hann innlyksa ásamt öðrum þýskum ríkisborgurum í búðum nálægt Lancaster þar sem hann kenndi fólki líkamsæfingar sínar. Það var þá sem hinar eiginlegu og sönnu Pilates æfingar tóku á sig núverandi mynd. Eftir stríð flutti hann til Bandaríkjanna.


Joseph H. Pilates

Á skipinu til USA kynntist hann verðandi eiginkonu sinni, henni Klöru. Þau stofnuðu eigið studio og þar leiðbeindu þau nemendum fram yfir 1960. Kerfi Pilates sem hann og Klara kölluðu upphaflega “Contrology”, vakti fljótlega athygli og áhuga innan dansheimsins og listageirans alls. Frá þeirra sjónarmiði, var “Contrology” fullkomin heildræn samhæfing fyrir líkama, huga og anda. Þekktir dansarar eins og George Balanshine og Martha Graham aðhylltust Pilates kerfið og sendu nemendur til þjálfunar hjá þeim hjónum. Pilates stundaði sjálfur eingöngu sitt eigið kerfi og lifði löngu og heilbrigðu lífi en dó 1967, 87 ára gamall. Í dag er Pilates kerfið stundað um gjörvallan heim, jafnt af íþróttamönum, dönsurum sem og öðru fólki sem lætur sér ant um heilbrigði sitt.

Jósef Pilates var snillingur og á undan sinni samtíð. Hann þróaði ekki bara fullkomið æfingakerfi sem samsett er af um 500 líkamsæfingum heldur fann hann líka upp öll tækin, aðferðina og allt það sem þarf til að kenna Pilates kerfið og ná árangri. Það er enginn vafi á því að hans upprunalega prógram getur gert kraftaverk þegar því er stýrt af lærðum kennara sem skilur hvernig á að þróa og kenna hið upprunalega Pilates, með líkamann þinn og möguleika hans að leiðarljósi. Þegar æfingarnar eru framkvæmdar rétt þá líturðu vel út, þér líður betur og þú beitir líkamanum réttar.

Þættir um árangur
Daglegar athafnir eins og sitja, standa, hlaupa, iðka íþróttir, dansa eða þjálfun í tækjasölum rækta suma vöðva betur en skilja aðra eftir óþjálfaða. Afleiðingar af vanþjálfun sumra vöðva líkamans eru yfirleitt ekki ígrundaðar fyrir fram en geta verið ástæða fyrir þreytu, óþægindum, verkjum og stirðleika.

Þeir sem sem iðka hið sanna Pílates kerfi uppgötva að þeir ómeðvitað sitja og ganga í réttari líkamsstöðu, hreyfa sig tignarlegar, sofa betur og þróa styrkari vöðva. Jósef Pilates eyddi yfir 50 árum ævi sinnar í að vinna að einkar sérstöku æfingarkerfi sem tekur tillit til huga og vöðvakerfis í þeim tilgangi að öðlast andlegt og líkamlegt jafnvægi.

Hver og einn Pilates iðkandi sem stundar hið upprunalega Pilates kerfi mun alla jafna styrkjast í 10 mikilvægum þáttum er snerta sál og líkama, þ.e:

1. Stjórn og samhæfing hreyfinga
2. Meðvitund um miðju líkamans
3. Betri einbeiting
4. Nákvæmni æfinga sem miða að jafnvægi líkamans
5. Betri öndun
6. Bætt blóðrás
7. Stöðugleiki og liðleiki liða
8. Mýkt og styrkur vöðva
9. Aukin orka
10. Aukið sjálfstraust

Pilates lofar árangri


Lára Stefánsdóttir, pílatesþjálfari / danshöfundur

Lára Stefánsdóttir varð vottaður Pilates leiðbeinandi haustið 2003 frá “The Pilates studio” í Den Haag, Hollandi, þar sem Marjorie Oron er stjórnandi. Marjorie Oron og Philippe Taupin sem rekur Pilates studio í París, eru helstu "Authentic Pilates" leiðtogar í Evrópu og þjálfa upp Pilates leiðbeinendur sem læra eingöngu “Ekta Pilates” eða “True Pilates” sem er nú undir forrystu eina núlifandi nemanda Josefs Hubertus Pilates - Romana Krysanowka. Lára tók hluta námsins hjá Philippe Taupin í París og framhaldsnámskeið hjá Romana Krysanowka.

Lára hefur verið atvinnudansari síðan 1980 og var fastráðinn við Íslenska dansflokkinn frá 1982 til 2004. Hún dansaði fjölda leiðandi hlutverka á þessum árum með flokknum. Lára hefur lengi unnið sem danshöfundur og samið fjölda dansverka, m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn, Listdansskóla Íslands, Pars Pro Toto dans-leikhús, og séð um dans/sviðshreyfingar við helstu leikhús landsins. Hún lauk mastersnámi í kóreógrafíu við Middlesex University, London vorið 2006.


Ástrós Gunnarsdóttir pílatesþjálfari / danshöfundur

Smelltu hérna til að skoða pilatesnámskeið í boði



Annir
. Haust 2009
. Vetur 2009-10



Tóney - allt árið

sjá nánar




Tóney - deildir

sjá nánar




Starfsemi utan Síðumúla

sjá nánar




Hverjir hafa aðsetur á Tóney?
. Caput
. Ekta - Pilates
. Ítölskunámskeið Ferðalangs
. Pars Pro Toto
. Rússíbanar



Áhugaverðar síður
. Ástrós Gunnarsdóttir - Pilates / dans
. Caput - nútímatónlist
. Hallgrímur Arnarson - ljósmyndir o.fl.
. Ítölskunámskeið Ferðalangs -
. Tatu Kanotmaa - harmoníka